

NORTHÉL cedarwood
100% lífræn ilmkjarnaolía úr sedrusviði
(Cedrus Atlantica) með hlýjan og jarðbundinn ilm. Cedarwood er vinsæl í sauna, á ilmsteina og í ilmdreifara þar sem óskað er eftir rólegri og notalegri stemningu. Ilmurinn er með hlýjum viðartónum sem gefur rýminu ilm af náttúrunni.
NORTHÉL ilmkjarnaolíurnar eru framleiddar af frönsku fjölskyldufyrirtæki með áratuga reynslu af framleiðslu lífrænna ilmkjarnaolía. Staðsett í hjarta Provence héraðs þar sem þekking á ilmplöntum, ræktun og eimingu hefur þróast í gegnum kynslóðir.
Áhersla er lögð á gæði, rekjanleika og ábyrga framleiðslu þar sem unnið er náið með ræktendum og hráefnunum fylgt alla leið frá ræktun til fullunninnar vöru.
NORTHÉL ilmkjarnaolíurnar sameina einstök gæði, lífrænan uppruna og fagmennsku í öllu framleiðsluferlinu.
Nánari vörulýsing
Notkun
Choose options

