Skilmálar
Velkomin í SAMFJELAGIÐ.
KSH ehf.
Kt. 520825-2150
Netfang: samfjelagid@samfjelagid.is
Með því að versla hjá SAMFJELAGINU samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Við leggjum áherslu á gæði, traust og meðvitaða neyslu.
Greiðslur og verð
Allar greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Teya Iceland hf. Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK) og innihalda 24% virðisaukaskatt nema annað sé tekið fram. Sendingarkostnaður skv. gjaldskrá Dropp bætist við upphæðina þegar afhendingarmáti hefur verið valinn. Við leggjum upp úr því að verð sem sýnd eru í vefversluninni séu rétt. Hinsvegar áskilum við okkur þann rétt að breyta verði á vörum án fyrivara. Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur borist seljanda og staðfesting hefur borist kaupanda í tölvupósti.
Sendingar
Við sendum pantanir með viðurkenndum flutningsaðila, Dropp ehf. Afhendingartími er almennt 2–5 virkir dagar innanlands. Við leggjum okkur fram við að senda pantanir hratt og örugglega, en töf sem verður hjá flutningsaðila er utan okkar ábyrgðar. Um vörur sem dreift er af Dropp ehf. gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp ehf. um afhendingu vörunnar. Vinsamlegast gangið úr skugga um að heimilisfang og tengiliðaupplýsingar séu réttar. Ef pöntun berst til baka vegna rangra upplýsinga fellur tilfallandi kostnaður á kaupanda. SAMFJELAGIÐ áskilur sér rétt til að hætta við pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða ef varan er uppseld. Einnig er áskilinn réttur á að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áhættuflutningur: Áhættan flyst yfir til kaupanda þegar pöntun hefur verið afhent honum (ekki flutningsaðila). Ef pöntunar er ekki vitjað eða henni veitt viðtaka á réttum tíma og það má rekja til kaupanda eða atvika sem hann varða flyst áhættan yfir á kaupandann þegar pöntun er honum til ráðstöfunar og vanefnd verður af hans hálfu við það að veita henni ekki viðtöku.
Skil og endurgreiðslur
Kaupandi hefur rétt til að skila vöru innan 14 daga frá móttöku, að því gefnu að vara sé í upprunalegu ástandi og kvittun sé framvísað sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt greiðslukvittun og er varan endurgreidd að fullu. Sendingarkostnaður við að skila vöru er greiddur af kaupanda. Vörum er skilað í gegnum Dropp, sjá hér. Ef meira en 14 dagar eru frá vörukaupum getur kaupandi skipt vörunni fyrir aðra vöru eða fengið inneignarnótu, ákvæði þetta gildir innan 30 daga frá kaupum. Endurgreiðsla er framkvæmd innan 14 daga eftir móttöku á skilavöru.
Gæði og ábyrgð
Við veljum vörur af kostgæfni og leggjum áherslu á gæði og náttúruleg hráefni. Ef vara reynist gölluð við móttöku biðjum við þig um að hafa samband innan 48 klukkustunda svo við getum leyst málið fljótt og vel.
Notkun vara
Saunaböð eru athöfn og við hvetjum til meðvitaðrar notkunar. Fylgið ávallt leiðbeiningum með vörum. Ekki nota vörur í öðrum tilgangi en þeim sem ætlaður er. Notkun vara er á ábyrgð notanda.
Ilmkjarnaolíur
Ilmkjarnaolíur eru kraftmiklar náttúruvörur og skulu notaðar af virðingu og varúð. Ekki bera óþynnt á húð nema sérstaklega sé tekið fram. Forðist snertingu við augu. Haldið frá börnum og gæludýrum. Ráðfærið ykkur við heilbrigðisstarfsmann ef þið eruð barnshafandi, með undirliggjandi sjúkdóma eða á lyfjum. Vörur SAMFJELAGSINS eru ekki ætlaðar til að greina, meðhöndla eða lækna sjúkdóma.
Persónuupplýsingar
Öll meðhöndlun persónuupplýsinga er í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90, 2018.
Upplýsingar sem þú veitir okkur í tengslum við heimsóknir og pantanir eru notaðar til að afgreiða pantanir, tryggja afhendingu, hafa samband ef þörf krefur og vinna greiðslur. Upplýsingar eru eingöngu aðgengilegar okkur og þeim þjónustuaðilum sem nauðsynlegir eru til að ljúka viðskiptum, svo sem greiðslugátt og flutningsaðila. Þú átt rétt á að fá aðgang að þínum gögnum, óska eftir leiðréttingu og óska eftir eyðingu þar sem það á við. Fyrirspurnir má senda á samfjelagid@samfjelagid.is.
Hugverkaréttur
Allt efni á vefsíðunni, þar á meðal texti, myndir og vörumerkið NORTHÉL, er eign SAMFJELAGSINS og má ekki nota án skriflegs leyfis.
Póstlisti
Skráning á póstlista SAMFJELAGIÐ byggir á samþykki. Við notum netfang eingöngu til að senda fréttir, tilboð og innblástur tengdan vellíðan. Hægt er að afskrá sig hvenær sem er með tengli í tölvupósti.
Bókhaldsgögn
Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við íslensk lög og öryggiskröfur persónuverndarlöggjafar. Geymsla slíkra gagna miðast við lögbundinn varðveislutíma.
Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar
SAMFJELAGIÐ ber ábyrgð á gæðum vara í samræmi við íslensk lög. Við berum ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af rangri notkun vara eða notkun utan leiðbeininga. Notkun vara er á ábyrgð notanda.
Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra skilmála þegar þörf krefur. Nýjustu skilmálar eru ávallt birtir á vefsíðu SAMFJELAGSINS og taka gildi við birtingu.
Vafrakökur
Vefsíða SAMFJELAGIÐ notar vafrakökur til að tryggja bestu mögulegu upplifun. Vafrakökur eru notaðar til að bæta virkni síðunnar, greina notkun og styðja við markaðssetningu þar sem við á. Með notkun vefsíðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.
Öryggi upplýsinga
Vefverslun SAMFJELAGSINS er rekin á öruggu vefverslunarkerfi. Greiðsluupplýsingar eru dulkóðaðar og meðhöndlaðar í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðla. Við geymum aldrei greiðslukortaupplýsingar
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.