NORTHÉL TEXTÍLL




um vörumerkið
Við höfum smám saman fjarlægst náttúrulegu efnin sem áður voru sjálfsagður hluti af lífi okkar.
Hlutirnir sem við notum á hverjum degi eru oft í náinni snertingu við okkur, klukkustundum saman. Þess vegna skiptir máli úr hverju þeir eru gerðir.
Hjá NORTHÉL veljum við náttúruleg, vönduð efni og leggjum jafn mikla áherslu á efnisval, notagildi og hönnun. Hluti sem eru fallegir, vandaðir og gerðir úr vandlega völdum efnum. Hluti sem standast tímans tönn og verða hluti af deginum okkar um ókomin ár.
Handklæðið sem þú vefur um þig eftir bað. Sloppurinn sem þú ferð í á morgnana. Sængurfötin sem þú sefur í á hverri nóttu. Burstinn sem snertir húðina. Flaskan sem fylgir þér í gegnum daginn. Tebollinn þegar hægist á.
Náttúruleg efni. Tímalaus hönnun. Fyrir litlu augnablikin.
HUGSJÓN SAMFJELAGSINS
Við veljum vörur frá framleiðendum sem við þekkjum og treystum, með áherslu á hrein efni, fallega hönnun og gæði. Markmið okkar er að gera þér einfaldara að velja vel.
HREIN EFNI
Við hjá SAMFJELAGINU leggjum metnað í að bjóða upp á hreinar vörur án óþarfa og skaðlegra efna. Vörur sem styðja við líkamann þinn og umhverfið án málamiðlana.
GÆÐI
SAMFJELAGIÐ býður eingöngu upp á vandaðar gæðavörur þar sem hugsjónin um færri og vandaðri hluti eru í fyrirrúmi. Markmiðið er einfalt, að gera þér auðveldara að velja vel.
HÖNNUN
Við trúum því að falleg og tímalaus hönnun hafi áhrif á líðan okkar. Því veljum við vörur sem sameina notagildi og tímalausa hönnun. Vörur sem gott er að hafa í kringum sig og nota aftur og aftur.
Við mælum með
Vandaðar saunavörur frá SAUNAGUT


SAUNAHATTAR

Saunahattar
Hlutverk saunahatta
Það er ástæða fyrir því að saunahattar hafa verið hluti af finnskri saunahefð í áratugi.
Þegar hitinn í sauna eykst stígur hitinn upp og safnast fyrir efst í rýminu. Höfuðið hitnar að auki hraðar en restin af líkamanum og getur orðið óþægilega heitt.
Saunahattur virkar sem einangrun og hægir á hitaflutningi til höfuðsins. Það hjálpar líkamanum að hitna jafnar og minnkar líkur á ofhitnun og svima.
Hatturinn verndar einnig hár og hársvörð gegn hitanum.
Hattarnir sem er seldir í SAMFJELAGINU eru allir úr 100% ull. Ullin einangrar, andar og er að auki náttúrulega sjálfshreinsandi sem gerir það að verkum að oft nægir að lofta vel um hattinn eftir notkun.


































