Við mælum með
HUGSJÓN SAMFJELAGSINS
HREIN EFNI
Við hjá SAMFJELAGINU leggjum metnað í að bjóða upp á hreinar vörur án óþarfa og skaðlegra efna. Vörur sem styðja við líkamann þinn og umhverfið án málamiðlana.
GÆÐI
SAMFJELAGIÐ býður eingöngu upp á vandaðar gæðavörur þar sem hugsjónin um færri og vandaðri hluti eru í fyrirrúmi. Markmiðið er einfalt, að gera þér auðveldara að velja vel.
HÖNNUN
Við trúum því að falleg og tímalaus hönnun hafi áhrif á líðan okkar. Því veljum við vörur sem sameina notagildi og tímalausa hönnun. Vörur sem gott er að hafa í kringum sig og nota aftur og aftur.
Vandaðar saunavörur frá SAUNAGUT



Saunahattar
Hlutverk saunahatta
Í sauna stígur hitinn upp og því hitnar höfuðið og hárið hraðar en líkaminn og getur orðið óþægilega heitt.
Saunahattur virkar sem einangrun og hægir á hitaflutningi til höfuðsins. Það hjálpar líkamanum að hitna jafnar og minnkar líkur á ofhitnun og svima.
Með því verður upplifunin stöðugri og oft þolir fólk hitann lengur.
Hatturinn verndar einnig hár og hársvörð gegn hitanum.
Náttúrulegir trefjar, eins og ull, einangra, anda og hjálpa til við að halda jafnvægi á hita líkamans.














